Brúðkaup og fimmtugsafmæli




Þetta er búin að vera rosalega fín helgi - fór austur á Kirkjubæjarklaustur með allri fjölskyldunni þar sem Bubbi og Halldóra pússuðu sig saman á Prestbakka og Bubbi hélt upp á fimmtugsafmæli sitt á sama tíma. Við byrjuðum á því á laugardagsmorguninn eftir morgunmat að skella okkur í réttir sem voru í gangi akkúrat þessa helgi. Þar fóru krakkarnir og hlupu á eftir rollunum og við hin fylgdumst með. Ég fékk nú nett komment á mig fyrir að vera nettur "city slikker" og var aðeins fíflast með það að maður þyrfti nú að slökkva á farsímanum til að fæla ekki rollurnar... ég hafði nú bara rosalega gaman af þessu og held að það búi nú nettur sveitamaður í manni innst inni... Síðan var brunað upp á hótel og ég greiddi brúðinni og Esther frænka málaði hana og var hún alveg glimrandi falleg brúður. Athöfin var mjög vel heppnuð og kirkjan alveg sérstaklega falleg - svona gömul sveitakirkja í fallegu umhverfi. Þá var haldið upp á hótel þar sem var fordrykkur og kvöldverður. Veislan var mjög skemmtileg og er fjölskyldan hennar Halldóru mikið fyrir það að syngja og var mikið sungið. Síðan var réttarball í félagsheimilinu og við yngri deildin skelltum okkur á það - mikið tjúttað og dansað.
Svo var bara brunað í bæinn í dag... get ekki neitað því að maður er pínu lúinn eftir svona keyrslu... en algjörlega þess virði ;)







